Meira en 800 ökumenn hafa verið kærðir fyrir ölvunarakstur á þessu ári

Meira en 800 ökumenn hafa verið kærðir fyrir ölvunarakstur á þessu ári, nokkuð fleiri en í fyrra. 1120 hafa verið kærðir fyrir að aka undir áhrifnum fíkniefna, sem er fækkun frá því á sama tíma í fyrra.

Lögreglan hefur nú hafið átak varðandi ölvunarakstur, líkt og verið hefur á aðventunni undanfarin ár. Þá hefur síðustu ár verið notuð sú aðferð að setja upp vegartálma og láta ökumenn blása í áfengismæli. Þetta kom fram í kvöldfréttum á RÚV.

Í gærkvöldi setti lögreglan upp vegartálma á Hringbraut í Reykjavík í kvöld, þar sem hver einasti ökumaður var prófaður með áfengismæli. Árni Friðleifsson, aðalvarðstjóri umferðardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, sagði að því miður hefðu aðeins liðið nokkrar mínútur þar fyrsti ökumaðurinn mældist ölvaður undir stýri.

Viðtal við Árna Friðleifsson, aðalvarðstjóra umferðardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á RÚV má nálgast hér.