Mercedes-Benz EQS verður flaggskip þýska bílaframleiðandans

Lúxusrafbíllinn Mercedes-Benz EQS mun koma á markað á næsta ári og verður hann flaggskip rafbílaflota þýska lúxusbílaframleiðandans. Mercedes-Benz kemur fram með nýjan arkitektúr á næsta ári sem byggir á rafmagni.  Þýski lúxusbílaframleiðandinn mun setja margar gerðir bíla á markað á næsta ári sem allir verða hreinir rafbílar og framleiddir af EQ deild Mercedes-Benz. Með þessum áætlunum ætlar Mercedes-Benz sér að vera leiðandi í þróun rafbíla á heimsvísu.

EQS er glæsilegur og afar tæknivæddur lúxusrafbíll frá Mercedes-Benz og verður fyrsti EQ bíll Mercedes-Benz sem byggir á nýjum EVA undirvagni sem er stækkanlegur og liggur flatur undir bílnum líkt og hjólabretti. EVA undirvagninn gefur því meiri möguleika á auknu innanrými en áður hefur sést að sögn Mercedes-Benz. EQS verður búinn miklum lúxus og tækni fyrir ökumann og farþega og á að vera leiðandi rafbíll í lúxusflokki.

EQS verður með allt 700 km drægni samkvæmt WLTP staðli og er búinn tveimur öflugum rafmótorum sem skila 469 hestöflum. Bíllinn er fjórhjóladrifinn og kemst úr kyrrstöðu í hundraðið á aðeins 4,5 sekúndum. Hægt er að hlaða bílinn allt að 80% hleðslu á innan við 20 mínútum. EQS verður m.a. með nýjustu útgáfuna af MBUX margmiðlunarkerfinu.

Bíllinn verður búinn nýjasta Level 3 kerfi í sjálfkeyrandi akstri og að sögn Mercedes-Benz verður bíllinn að fullu sjálfkeyrandi í nánustu framtíð. Þá er bíllinn með nýjustu tækni af Digital framljósum sem verða með sérlega öflugt 360° ljósabelti. AMG útgáfa af EQS kemur á markað fljótlega í kjölfarið en sá verður gríðarlega öflugur með tveimur rafmótorum sem skila alls 600 hestöflum.

Það er margt spennandi framundan hjá Mercedes-Benz í rafbíladeildinni. EQC sportjeppinn er sá fyrsti sem kom á markað í fyrra og hefur fengið góðan orðstír og mikla athygli. Næstu hreinu rafbílarnir sem koma á markað eru EQA, EQB, eVito Tourer og EQV.