Mercedes-Benz fjárfestir í framleiðslu á rafbílum

Daimler, eigandi Mercedes-Benz, hefur fjárfest fyrir alls 730 milljónir evra í verksmiðju sem mun einblína á framleiðslu á rafbílum frá Mercedes-Benz.

Verksmiðjan er í Sindelfingen í Þýskalandi þar sem fleiri verksmiðjur Mercedes-Benz eru staðsettar og hefur fengið heitið "Verksmiðja 56". Alls hefur Daimler fjárfest fyrir 2,1 milljarð evra á Sindelfingen svæðinu.

Verksmiðja 56 er ein sú tæknivæddasta í heimi, en auk þess er hún sögð verða sérlega skilvirk, sveigjanleg og sjálfbær í rekstri.

Notast verður við gervigreind til að sérsníða hvern bíl sem framleiddur er í verksmiðjunni eftir vali hvers viðskiptavinar fyrir sig. Þar verða framleiddir rafbílar af öllum stærðum og gerðum, en framundan er mikil aukning í framleiðslu rafbíla frá Mercedes-Benz.

Verksmiðja 56 mun auka skilvirkni um 25% vegna framleiðslu á nýrri kynslóð lúxusbílsins S-Class. Bíllinn er búinn fullkomnum tæknibúnaði og getur að miklu leyti ekið á sjáfstýringu. S-Class er flaggskip fólksbílaflota Mercedes-Benz.

Mercedes-Benz stefnir á að í lok næsta árs verði komnir fimm hreinir rafbílar á markað frá þýska lúxusbílaframleiðandanum; EQC, EQV, EQA, EQB og EQS.