Mest ekið á föstudögun en minnst á sunnudögum í nóvember

Umferðin á höfuðborgarsvæðinu jókst um 5,5 prósent í nóvember. Útlit er fyrir að umferðin í ár á svæðinu aukist um átta prósent sem er mikil aukning á einu ári, eða sú næst mesta síðan þessar mælingar hófust árið 2005.

Sama gildir um Hringveginn þar sem einnig stefnir í næst mestu aukninguna á þessum tíma og enn meiri aukningu. Þetta kemur fram á vef Vegagerðarinnar. 

Umferðin yfir þrjú lykilmælisnið Vegagerðarinnar á höfuðborgarsvæðinu jókst um 5,5% í nýliðnum nóvember borið saman við sama mánuð á síðasta ári.

Mest jókst umferðin um Reykjanesbraut við Dalveg eða um 9,0%. Nú hefur umferðin aukist um 8,2%, frá áramótum miðað við sama tímabil á síðasta ári.

Umferð eftir vikudögum
Í nýliðnum mánuði jókst umferðin mest á miðvikudögum eða um tæp 8%. Samdráttur varð í umferðinni á sunnudögum í nóvember 2017 miðað við sama mánuð árið 2016 eða sem nemur 2,7%. Mest var ekið á föstudögum og minnst á sunnudögum.

Gert er ráð fyrir að umferðin milli desember mánaða aukist um sama hlutfall og milli nóvember mánaða eða um 5,5%. Verði niðurstaðan þannig þá eykst umferðin í heild um 8% milli áranna 2016 og 2017, sem yrði næst mesta aukning frá upphafi samantektar en aðeins milli áranna 2006 og 2007 hefur mælst hlutfallslega meiri aukning en þá jókst umferðin um rétt rúm 9% á milli ára.