Metumferð á höfuðborgarsvæðinu í júní

Umferðin á höfuðborgarsvæðinu í júní reyndist 5,2 prósentum meiri en fyrir ári síðan. Ekki hefur áður mælst jafn mikil umferð á svæðinu í einum mánuði. Reikna má með að umferðin í ár aukist um 4-5 prósent og yrði það nýtt met í umferðinni verði það niðurstaðan. Þetta kemur fram í tölum frá Vegagerðinni.

Líkt og á Hringvegi var einnig slegið met í umferðinni á höfuðborgarsvæðinu, ef marka má þrjú lykil mælisnið Vegagerðarinnar, en hæstu gildi, sem nokkru sinni hafa verið mæld í einum mánuði mældust í nýliðnum júní. Hlutfallsleg aukning nam 5,2%.

187 þús. ökutæki á sólarhring um mælisniðin þrjú

Í tölum Vegagerðarinnar kemur fram að alls fóru að jafnaði rúmlega 187 þús. ökutæki á sólarhring, um mælisniðin þrjú. Gamla metið var rúmlega 183 þús. ökutæki á sólarhring en það var frá því í maí 2022. Nýja metið er því um 2% stærra en fyrra met. Sögulega eru maí og september umferðarmestu mánuðir á höfuðborgarsvæðinu svo það er möguleiki á að þetta nýja met verði slegið núna í haust.

Umferðin jókst yfir öll mælisnið og mest um snið á Reykjanesbraut eða um 6,5% en minnst um mælisnið á Hafnarfjarðarvegi eða um 2,7%. Nú hefur uppsöfnuð umferð, frá áramótum á höfuðborgarsvæðinu, aukist um 5,2% miðað við sama tímabil á síðasta ári.

Mest ekið á föstudögum
Mest var ekið á föstudögum, í nýliðnum mánuði, og minnst á sunnudögum.Umferð jókst í öllum vikudögum, mest á föstudögum, borið saman við sama mánuð á síðasta ári, og minnst á laugardögum. Meðalaukning virka daga var 6,2% og 3,9% um helgar.