Metumferð í apríl á Hringvegi

Met var sett í umferðinni á Hringvegi í apríl en aldrei hefur mælst jafnmikil umferð í þeim mánuði. Umferðin frá sama mánuði í fyrra jókst um tæpt 21 prósent. Umferðin reyndist 8,5 prósentum meiri en hún hefur áður mælst í apríl. Umferðin jókst mest á Austurlandi en í mælisniði á Mýrdalssandi jókst umferðin um heil 170 prósent að því er fram kemur í tölum frá Vegagerðinni.

Gríðarmikil aukning varð í umferð yfir 16 lykilteljara Vegagerðarinnar, á Hringvegi í nýliðnum apríl borið saman við sama mánuð á síðasta ári, eða tæplega 21% aukning. Þessi aukning varð til þess að nýtt umferðarmet var sett í aprílumferð en hún reyndist 8,5% meiri en hún hafði áður mælst. Fyrra met var frá árinu 2019.

Hlutfallslega mældist mest aukning á Austurlandi eða rúm 52% en minnst jókst umferðin við höfuðborgarsvæðið eða um tæp 12%. Af einstaka stöðum varð mest aukning um mælisnið á Mýrdalssandi eða um rétt rúm 170%.

Nú hefur umferð aukist á öllum landssvæðum, frá áramótum, að undanskildum mælisniðum við höfuðborgarsvæðið en þar hefur umferð dregist saman um rúm 3%. Mest hefur umferð aukist um Austurland eða um rúm 22%.

Athygli vekur að umferðin hefur dregist saman fyrri part meðalvikunnar en aukist seinni hluta hennar.  Mest hefur umferð aukist á miðvikudögum, eða um rúmlega 6%, en dregist mest saman á mánudögum, eða um tæp 7%.  Mest hefur verið ekið á föstudögum en minnst á laugardögum.