Nýr tengiltvinnbíll á leiðinni frá MG á Evrópumarkað

Bílaframleiðandinn MG birti í Lundúnum í dag, miðvikudag, fyrstu ljósmyndina af nýrri bílgerð fyrir Evrópumarkað. Um er að ræða tengiltvinnbíl sem verður viðbót við hinn 100% rafknúna ZS EV sem kom á markað á síðasta ári í völdum löndum Evrópu. Áætlað er að MG HS komi á Evrópumarkað á fyrsta ársfjórðungi 2021.

MG HS er búinn rafknúinni aflrás og öflugri bensínvél sem vinnur snurðulaust með rafmótornum og rafhlöðu hans til að tryggja hnökralaus afköst, afl og drægni.

„Reynsla ökumanna er í fyrirrúmi hjá MG,“ segir Matt Lei, forstjóri MG Motor Europe. „MG hjálpar bíleigendum að skipta yfir í „hinn rafmagnða heim“ með vel hannaðri og umhverfismeðvitaðri akstursupplifun sem er í senn hagnýt, örugg og hagkvæm.

MG HS er rúmgóður sportjepplingur (segment C) með tengiltvinnaflrás rafmótors og bensínvélar, sem sérstaklega var hannaður til að veita ökumönnum áhyggjulausan og umhverfisvitaðan akstur sem sé öllum aðgengilegur.

MG mun í desember nk. veita frekari upplýsingar um þennan nýja tengiltvinnknúa sportjeppling samhliða áætlunum um tímsetningu markaðskynningar hans í Evrópu, sem verður mismunandi eftir löndum.