Mikill samdráttur á höfuðborgarsvæðinu en minni en í maí

Umferðin í maí á höfuðborgarsvæðinu reyndist 9,5 prósentum minni en í sama mánuði fyrir ári síðan, þetta er mjög mikill samdráttur en mun minni en í apríl mánuði þegar samdrátturinn reyndist 28 prósent. Umferðin í síðustu viku reyndist einnig nánasta sú sama of í sömu viku fyrir ári, þannig að áhrifin af Covid-19 virðast vera að hverfa að því fram kemur í tölum frá Vegagerðinni.

Þá segir að umferðin í nýliðnum maí mánuði, fyrir þrjú lykilmælisnið Vegagerðarinnar á höfuðborgarsvæðinu, reyndist 9,5% minni en í sama mánuði á síðasta ári. 

Þetta er mun minni samdráttur en varð í apríl á þessu ári en þá varð til nýtt met sett í samdrætti milli einstakra mánuða sem reikna má með að verði seint slegið og vonandi aldrei af sömu ástæðu. Leita þarf aftur til ársins 2016 til að finna minni umferð í maí.

Mest dróst umferðin saman um snið á Hafnarfjarðarvegi eða um tæplega 18% en minnst í sniði á Reykjanesbraut eða um tæplega 6%. Samdráttur varð í öllum vikudögum en mest á sunnudögum og minnst á miðvikudögum. Mest var ekið á þriðjudögum en minnst á sunnudögum.

 Í síðustu viku var umferðin rétt undir umferðinni í sömu viku fyrir ári síðan eða rétt rúmlega 1% undir.  Umferðin í sniði á Reykjanesbraut reyndist rúmlega 3% meiri en fyrir ári síðan og er það eina sniðið sem sýndi aukningu á milli ára.  Mest dróst umferðin saman í sniði á Hafnarfjarðarvegi eða um rétt rúmlega 4% sem er minnsti samdráttur frá því í viku 8, á þessu ári.

Hlutfallslegur mismunur á umferð í viku 22 eftir mælisniðum:

Hafnarfjarðarvegur við Kópavogslæk     -4,2%
Reykjanesbraut við Dalveg í Kópavogi    +3,2%
Vesturlandsvegur ofan Ártúnsbrekku      -3,5%