Minni aukning umferðar á höfuðborgarsvæðinu

Umferðin á höfuðborgarsvæðinu jókst um 4,3 prósent í apríl síðast liðnum. Í ár nemur aukning umferðar á svæðinu 3,4 prósentum sem er mun minni aukning en á síðasta ári. Reikna má með að í ár aukist umferðin á höfuðborgarsvæðinu um 3-4 prósent. Þetta kemur fram í tölum frá Vegagerðinni.

Áætlað er að umferð hafi aukist um 4,3% milli apríl mánaða 2017 og 2018.  Nokkrar sveiflur koma fram á milli teljara en mælisnið ofan Ártúnsbrekku sýnir 9,2% samdrátt meðan mælisnið á Reykjanesbraut við Dalveg sýnir 15,2% aukningu.  

 Ekki er hægt að útiloka bilun í búnaði en umferð ofan Ártúnsbrekku mældist óvenju mikil á síðasta ári í apríl. Ekki hefur mælst meiri umferð í aprílmánuði frá upphafi þessarar samantektar og nú hefur umferð í apríl aukist um 2,5%, að jafnaði frá árinu 2005.

Nú er áætlað að umferð hafi aukist um 3,4% frá áramótum miðað við samsvarandi tímabil á síðasta ári. Þetta er tæplega þrisvar sinnum minni aukning en á sama tíma á síðasta ári. Umferð jókst í öllum vikudögum, í apríl, ef frá eru taldir sunnudagar en þar mældist 5% samdráttur. Mest jókst umferð á föstudögum eða um 15%, sem jafnframt voru umferðarmestir en sunnudagar umferðarminnstir.

Reiknað er með því að umferðaraukning á höfuðborgarsvæðinu verði mun hóflegri en undanfarin þrjú ár eða um 3 – 4 %.