Minni símanotkun undir stýri

Í byrjun þessa árs var hrundið af stað fjórðu herferðinni í nafni Höldum fókus átaksins. Tilgangurinn var nú sem fyrr að varpa ljósi á þá miklu hættu sem stafar af notkun snjallsíma á meðan á akstri stendur. Að þessu sinni stóðu að baki herferðinni; Samgöngustofa, Sjóvá og Strætó.

Farin var nýstárleg leið þar sem herferðin tengdist Instagram reikningi fólks og þannig komst það inn í einstaka upplifun sem tengdist áhugasviði viðkomandi. Tæknina og hugmyndina að baki þessu vann Tjarnargatan, en í samstarfi við Google er notuð gervigreind til að sérsníða sögulínu að lífstíl hvers og eins.

Í könnun sem Gallup gerði mánuð eftir að herferðin fór af stað kom fram að þessi herferð líkt og fyrri nær mikill athygli fólks og 7 af hverjum 10 sem sáu herferðina telja sig knúna til að hætta alfarið, mikið eða að einhverju leyti, símanotkun undir stýri. 

Í könnuninni kemur einnig fram að 71% landsmanna hafi, á rúmum mánuði, orðið vör við herferðina og 43% mjög oft eða oft. 56% þeirra sem sjá auglýsinguna telja boðskapinn komast vel eða mjög vel til skila. 

 Í viðhorfskönnun sem Gallup gerði í lok síðasta árs, fyrir Samgöngustofu, kemur fram að 53% ökumanna segja farsímanotkun annarra ökumanna valda sér mikilli truflun. 100% þeirra sem spurðir voru telja það hættulegt að skrifa texta eða skilaboð á símann og 87% telja notkun farsíma án handfrjáls búnaðar hættulega.

Það er því ljóst hve hættulega hegðun fólk telur þetta vera en það kemur einnig fram í könnuninni að margir þeir sem telja hegðunina hættulega nota sjálfir farsíma með þeim hætti sem um ræðir. 

Þótt þessi niðurstaða sé vísir af góðu er ljóst að ekki má sofna á verðinum með að fræða ökumenn og minna á þá miklu hættu sem stafar af akstri „undir áhrifum“ farsíma.

Eitt atriði er þvert á þessa þróun en það er að fólk virðist í auknu mæli nota símann til að stjórna tónlist á meðan á akstri stendur. Það er mikilvægt að hafa í huga að mörg aflvarleg slys eru rakin til farsímanotkunar ökumanns en það getur aldrei talist réttlætanlegt eða þess virði að viðhafa í ljósi alvarlegra afleiðinga. 

Nánar um könnunina má nálgast hér.