Minni umferð á Hringveginum en undanfarin ár

Umferðin um 16 lykilteljara Vegagerðarinnar á Hringveginum jókst um 7,4 prósent í nýliðnum aprílmánuði. Þótt þetta sé töluvert mikil aukning er hún minni en undanfarin ár. Frá áramótum hefur umferðin aukist um 6,3 prósent. 

Umferðin hefur aldrei mælst meiri í nýafstöðnum apríl frá upphafi, yfir 16 lykilteljara á Hringvegi, en hún jókst um 7,4% miðað við  sama mánuð á síðasta ári.  Þó að um talsverða aukningu sé að ræða er þetta mun minni aukning en undanfarin tvö ár.

Mest jókst umferðin um Suðurland, eða um 11.1% en minnst jókst umferðin um Austurland eða um 0,9%. Nú hefur umferðin aukist um 6,3%, frá áramótum yfir umrædd mælisnið.  Þetta er minni aukning en undanfarin tvö ár miðað við árstíma, en engu að síður talsverð.

Umferðin hefur aukist mest um Suðurland eða um 12% en minnst um Vesturland eða um 5,6%. Umferðin hefur aukist alla vikudaga, fyrir utan sunnudaga, miðað við það sem af er ári borið saman við sama tímabil á síðasta ári.

Mest hefur umferðin aukist á mánudögum eða um 10,2% en minnst á sunnudögum en þar mælist 0,8% samdráttur. Eins og áður er mest ekið á föstudögum og minnst á sunnudögum.

Umferðarhorfur eru lítillega hærri en í síðasta mánuði og nú er gert ráð fyrir 4,5 – 5,5% aukningu yfir umrædd mælisnið á Hringvegi.