Minningardagur 20. nóvember

Sunnudaginn 20. nóvember verður minnst þeirra sem látist hafa í umferðarslysum á Íslandi. Efnt verður til þessarar athafnar í fimmta sinn og er hliðstæð athöfn víða um heim að tilhlutan Sameinuðu þjóðanna sem hafa tileinkað þriðja sunnudag í nóvember þessari minningu. Innanríkisráðuneytið og Samgöngustofa hafa undirbúið athöfnina.

    Athöfn verður við þyrlupall bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi í Reykjavík kl. 11. Eftir að þyrla landhelgisgæslunnar hefur lent á þyrlupallinum klukkan 10:45 setur Ragnhildur Hjaltadóttir ráðuneytisstjóri innanríkisráðuneytis athöfnina kl. 11.00 og Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands flytur ávarp. Einnar mínútu þögn verður klukkan 11.15 að loknu ávarpi forseta Íslands en að henni lokinni segir Helga Þorbergsdóttir hjúkrunarfræðingur og sjúkraflutningamaður í Vík í Mýrdal frá lífsreynslu sinni og störfum tengdum umferðarslysum.

    Aðstandendur og aðrir sem minnast vilja þeirra sem hafa látist í umferðarslysum eru velkomnir á minningarstundina. Þátttakendum verður í framhaldinu boðin hressing í bílageymslu bráðamóttökunnar. Þeir sem eiga ekki heimagengt eru hvattir til að sýna viðeigandi hluttekningu þennan dag, hvar sem þeir eru staddir.

    Þann 1. nóvember 2016 höfðu alls 1.017 manns látist í umferðinni á Íslandi frá því að skipt var yfir í hægri umferð 26. maí 1968. Ef farið er aftur til fyrsta skráða umferðarslyssins á Íslandi, 25. ágúst 1915, þá hafa 1.533 látist í umferðinni á Íslandi í 1.405 slysum.

    Að meðaltali hefur umferðarslysum fækkað mikið undanfarna áratugi, sérstaklega banaslysum. Árin 2007-2016 létust að jafnaði 12,3 á hverju ári í umferðinni. Næstu 10 ár þar á undan (1997-2006) létust að jafnaði 24,4 á ári. Því má ætla að með betri bílum, betri vegum og betri hegðun ökumanna hafi tekist að bjarga um 12 mannslífum á hverju ári síðustu 10 árin.

    Framan af þessari öld hefur umferðarslysum fækkað og lengst af höfum við verið meðal þeirra þjóða sem hvað bestum árangri ná í umferðaröryggismálum. Nú stefnir hinsvegar í aðra átt. Árið 2015 fjórfaldaðist fjöldi látinna frá árinu 2014, fór úr 4 í 16 manns. Það sem af er þessu ári hafa 15 manns látið lífið í umferðinni.

    Alvarlega slösuðum og látnum hefur fjölgað talsvert á þessu ári og stefnir í versta ár síðasta áratuginn. Á fyrstu 8 mánuðum ársins 2016 er fjöldi alvarlega slasaðra og látinna 145 en var á sama tímabili í fyrra 111. Eftir þó nokkra fækkun slasaðra vegna ölvunaraksturs síðustu árin stefnir í mjög krappan viðsnúning og hafa slasaðir vegna ölvunaraksturs fyrstu átta mánuðina ekki verið fleiri síðan árið 2008.