Mitsubishi sýnir ekki í Frankfurt

http://www.fib.is/myndir/Mitsub.Miev.jpg
 Mitsubishi MiEV rafbíll. Væntanlegur til Íslands næsta haust.

Mitsubishi hefur hætt við að taka þátt í bílasýningunni í Frankfurt í september nk. Ástæðan er sögð sú að þeim fjármunum sem sýningarhaldið kostar sé betur varið í annað. Áður hefur Mitsubishi tilkynnt að fyrirtækið sé hætt þátttöku í Dakar rallinu. 

Um leið og Mitsubishi tilkynnti um að fyrirtækið drægi sig út úr Frankfurt bílasýningunni var tilkynnt að á þessu ári tæki Mitsubishi einungis þátt í einni bílasýningu í Evrópu á árinu - bílasýningunni í Genf sem opnuð verður eftir næstu mánaðamót.