Mótorhjól í bílaflutninga?

http://www.fib.is/myndir/Gold3lett.jpg
http://www.fib.is/myndir/Gold1lett.jpg
http://www.fib.is/myndir/Gold2lett.jpg

Fyrirtæki í Svíþjóð sem heitir Coming Through, hefur  byggt talsvert undarlegt farartæki til að flytja bilaða bíla á viðgerðarstað. Farartækið er  í grunninn Honda Goldwing mótorhjól. Aftan á hjólið hefur verið smíðað samanfellanlegt mannvirki úr áli sem, þegar greitt er úr því, myndar þriggja hjóla „búkka“ sem rennt er undir framhjól bílsins sem á að draga. Þetta skýrist ágætlega á meðfylgjandi myndum.

Hveru mikil alvara mönnum er með þessari smíð er okkur ekki kunnugt um en á heimasíðu fyrirtækisins má ráða að allmörg svona Retriever-hjól, eins og tækið kallast, hafa verið byggð og virðast vera í notkun. Meginhugsunin með þessu er sjálfsagt sú að oft er hægt að skjótast á mótorhjóli þar sem bílar eiga erfiðara með að komast, ekki síst stórir dráttarbílar.

Norska bílablaðið BilNorge greinir frá þessu og getur þess í leiðinni að ekki sé vitað hvort bílabjörgunarfyrirtæki í Noregi, eins og t.d. Falck eða Viking, hafi sýnt farartækinu áhuga. 

Nafnið Retriever á þessu farartæki hefur greinilega tilvísun til þekktrar hundategundar; Golden retriever sem þykja afar tryggir eigendum sínum og hjálpsamir. Þeir er talsvert notaðir sem hjálparhundar við t.d. fuglaveiðar og eru duglegir við að sækja bráðina þegar veiðimaðurinn er búinn að skjóta hana niður.