N1 þjónustar Tesla eigendur á hrinferð um Ísland

N1 og Tesla hafa undirritað samstarfssamning um uppsetningu á Tesla hraðhleðslustöðvum á völdum N1 stöðvum umhverfis Ísland, sem gerir Tesla eigendum kleift að hlaða sína bíla þegar ekið er um þjóðveg 1. Gert er ráð fyrir því að fyrsta stöðin verði komin í rekstur snemma sumars 2020. Nú þegar eru tvær hraðhleðslustöðvar á vegum framleiðandans, önnur í Reykjavík og hin á Egilsstöðum.

 „Tesla eigendur geta í sumar stoppað á völdum N1 þjónustustöðvum og fengið sér bolla af góðu kaffi eða gætt sér á hefðbundinni íslenskri kjötsúpu á meðan þeir hlaða bifreiðar sínar. Við stefnum að því að fyrsta Tesla hraðhleðslustöðin verði opnuð í Staðarskála og einnig er verið að skoða fleiri staðsetningar með því markmiði að dekka hringveginn,“ segir Hinrik Örn Bjarnason, framkvæmdastjóri N1.

 „Við hjá Tesla erum ánægð með að hafa náð samningi við N1 um að flýta fyrir uppsetningu á hraðhleðslustöðvum Tesla á Íslandi. Samningurinn við N1 mun hjálpa okkur að nýta hraðhleðslutækni okkar á völdum N1 stöðvum til hagsbóta fyrir Tesla eigendur,“ segir Even Sandvold Roland, talsmaður Tesla.