Nauðsyn bílbelta

Síðustu daga skólaársins vinna nemendur 10. bekkjar Vogaskólalokaverkefni sem þeir kynna svo fyrir samnemendum, kennurum og foreldrum sínum. Lokaverkefni hópsins ,,SPENNT“, þeirra Gígju Karitasar Thorarensen, Kristínar Lovísu Andradóttur og Svölu Lindar Örlygsdóttur fjallaði um nauðsyn öryggisbelta. Þetta kemur fram á vef Samgöngustofu.

Þær völdu þetta mikilvæga málefni í ljósi þess að nemendur í 10. bekk eru oftar en ekki farnir að huga að ökunámi á þessum aldri og vildu þær vekja ungmenni til umhugsunar um umferðaröryggi. 

Hópurinn hannaði hettupeysur og lét framleiða og seldi til að fjármagna komu veltibílsins í skólann en veltibíllinn er í eigu Brautarinnar – bindindisfélags ökumanna og Ökuskóla 3. Markmiðið með veltibílnum er að leyfa notendum að finna, á áþreifanlegan hátt, hversu mikilvægt er að nota bílbelti, hvort sem það er í framsæti eða aftursæti.

Hópurinn vann verkáætlun, aflaði sér upplýsinga m.a. hjá Samgöngustofu, gaf út bækling og setti upp kynningarbás í skólanum þar sem gestir og gangandi gátu fræðst um mikilvægi bílbeltanotkunar og athugað hversu stuttan tíma það raunverulega tekur að spenna á sig bílbelti.

Á myndinni er Hildur Guðjónsdóttir, sérfræðingur í öryggis- og fræðslumálum hjá Samgöngustofu, sem var hópnum innan handar varðandi ýmis gögn, fræðsluefni og forvarnir.