Neytendastofa hafi ekki lokið sínu verkefni og víða sé pottur brotinn

Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda, segir næstu skref eftir niðurstöðu Neytendastofu um slæma viðskiptahætti fjögurra bílastæðafyrirtækja vera að tryggja að fyrirtækin fylgi henni. Neytendastofa hafi ekki lokið sínu verkefni og víða sé pottur brotinn. Þetta kemur fram í viðtali við Runólf í Morgunblaðinu í dag.

Fólk þurfi of mörg öpp til að borga í stæði

„Þarna virðast hentistefna og græðgi ráða för, sem er ekki æskilegt,“ segir Runólfur um fyrirtækin. Hann gagnrýnir að fólk þurfi of mörg öpp til að borga í stæði. „Af hverju er til dæmis Bílastæðasjóður í Reykjavík ekki sjálfur með app? Af hverju þarf fólk að fara inn í öpp hjá öðrum fyrirtækjum og borga auka þjónustugjald þar? Runólfur segir FÍB skoða möguleika á að gera app sem sameini öll bílastæðafyrirtækin.

„Við búum á gervihnattaöld, þá á allt að vera einfaldara. FÍB hafi ítrekað kallað eftir aðgerðum stjórnvalda.Við áttum fund með ráðherra snemma á síðasta ári og það var talað um að við þyrftum að taka þetta fastari tökum. Allir eru sammála um að það þurfi að taka á þessum málum og setja einhverja reglufestu um þetta,“ segir Runólfur.

Mikilvægt sé að komið verði á heildstæðu regluverki um rekstur gjaldskyldra bílastæða

Hann leggur til að Seðlabankinn marki ramma um eðlileg vangreiðslugjöld og að sett verði skýr lög um gjaldtöku af bílastæðum. Mikilvægt sé að komið verði á heildstæðu regluverki um rekstur gjaldskyldra bílastæða, sem hann lýsir sem „villta vestrinu“. Runólfur hvetur fólk sem telur sig hafa orðið fyrir óeðlilegri greiðslukröfu til að senda póst á fyrirtækið sem sendi kröfuna.

„Fara fram á niðurfellingu eða endurgreiðslu á vangreiðslugjaldi. Tilgreina upphæðina, nafn og kennitölu,“ segir Runólfur og bendir á síðu Neytendasamtakanna þar sem megi finna upplýsingar til hægðarauka.