Nissan kynnir nýjan jeppling til sögunnar

Á bílasýningunni í Genf í Sviss á dögunum kynnti Nissan m.a. hugmynd sína um nýjan, aldrifinn og rafknúinn jeppling, IMQ sem búinn verður nýrri útfærslu á tvinntækni. Tæknina kallar Nissan „e-Power“ sem fyrirtækið áætlar að innleiða á Evrópumarkað árið 2022. 

Þarf ekki að stinga í samband

Tvinntækni IMQ byggir að stærstum hluta á raftækni Nissan Leaf þar sem rafmótor knýr bílinn með orku af rafhlöðu. Tækni IMQ er frábrugðin Leaf að því leyti að í stað þess að stinga IMQ í samband við hleðslustöð til að hlaða rafhlöðu bílsins sér lítil og hljóðlát bensínvél í hlutverki rafals um hleðsluna en er ekki tengd sjálfri aflrás til hjólanna. 

IMQ verður því alfarið knúinn áfram af rafmótor og verður því upplifun af akstri að mörgu leyti áþekk akstri Leaf þar sem mikil snerpa og góð hljóðvist eru ríkjandi. Ákveðin útfærsla e-Power tækni Nissan er nú þegar í Nissan Note á Japansmarkaði sem er einn söluhæsti smábíllinn í Japan. Næsta kynslóð tækninnar, mun öflugri en sú sem er í nú í notkun, er að sögn Nissan væntanleg í mest seldu bílgerðir merkisins á Evrópumarkað.

Leaf fleiri en 400 þúsund

Nissan hefur framleitt rafbíla fyrir almennan markað lengur en nokkur annar bílaframleiðandi. Leaf er mest seldi rafbíllinn í Evrópu og fór nýlega yfir 400 þúsund eintaka markið á heimsvísu. Fjórhjóladrifni jepplingurinn Nissan Qashqai var sömuleiðis frumherji á sínu sviði þegar hann kom fyrst á markað í Evrópu árið 2013. Hann hefur síðan þá verið sá mest seldi í sínum flokki allar götur síðan.