Nissan Leaf bíll ársins á Kanaríeyjum 2019

Vinsælasti rafbíllinn á Vesturlöndum, Nissan Leaf, hefur verið kjörinn Bíll ársins 2019 á Kanaríeyjum, þar sem íbúar eru rúmar tvær milljónir. Nissan er eina merkið sem unnið hefur titilinn fjórum sinnum á eyjaklasanum. Áður voru það Juke 2011, Pulsar 2014, Micra 2017 og nú LEAF 2019, sem er jafnframt fyrsti rafbíllinn sem Kanaríeyjabúar afhenda titilinn.

Við val á bíl ársins eru lögð saman gefin stig í átta flokkum sem taka meðal annars til öryggis, hönnunar og útlits, nýsköpunar, tækni og þjónustu framleiðandans. Það var forseti hins spænska sjálfstjórnarsvæðis Kanaríeyja, Fernando Clavijo Batlle, sem afhenti verðlaunin við hátíðlegt tækifæri og tók Marco Toro, yfirmaður Nissan á Íberíuskaga við verðlaununum. 

10 milljónir olíufata sparast frá 2010

Leaf er langvinsælasti rafbíllinn á Kanaríeyjum og eiga íbúar eyjanna sinn þátt í þeim áfanga þegar Leaf náði því marki nýlega að fara yfir 400 þúsund eintaka markið í seldum eintökum, en Leaf er mest seldi fimm manna 100% rafknúni fólksbíllinn á heimsmarkaði (world's all-time best-selling highway-capable electric car). Samtals hafa ökumenn Leaf ekið bílunum um 10 milljarða kílómetra frá árinu 2010 þegar Leaf fór fyrst í sölu. Á tímabilinu hafa notendur sparað um 3,8 milljónir olíutunna á hverju ári í hefðbundnum eldsneytiskaupum. 

Leaf er ekki aðeins best seldi rafbíll Evrópu heldur hefur hann líka náð þeim áfanga að verða vinsælasti bíllinn á markaðnum í Noregi, þar sem Leaf var söluhæsti bíllinn 2018. Leaf er einnig vinsælasti rafbíll Spánar og á síðasta ári undirritaði Nissan samning við yfirvöld á Tenerife, einni eyju Kanaríeyja, um kynningarátak til að kynna umhverfisvænar samgöngur með orkuskiptum í því skyni að bæta loftgæði. Aldur bílaflotans á Kanaríeyjum er nú um 13,5 ár.