Nokkur atriði sem vert er að hafa í huga eftir veturinn

 

Þegar veturkonungur hefur kvatt og sumarið tekið við er vert að huga hvernig bílinn kemur undan vetrinum. Hér fyrir neðan eru nokkur atriði sem gott er að hafa í huga.

-       Þvoðu bílinn þinn

Þó þú hafir verið duglegur að þvo bílinn þinn í vetur þá er samt mikilvægt að taka almennileg þrif fyrir sumarið til að ná saltinu, tjörunni og almennum óhreinindum almennilega af bílnum. Jafnvel getur verið gott að fá fagmann í verkið til að taka bílinn að innan og utan. Einnig getur þú gert það sjálfur með því að gefa þér nægan tíma og passaðu uppá að gleyma ekki neðri hluta bílsins eins og undirvagninum, sílsalistunum og hurðarfölsum.

-       Skiptu um rúðuþurrkur

Vetrarharkan getur farið illa með rúðuþurrkublöðin þín, athugaðu ástandið á þeim og ef þær eru mikið slitnar skaltu skipta um þær, til að koma í veg fyrir að þær rispi hjá þér framrúðuna. Renndu við hjá næsta þjónustuaðila og fáðu hann til að aðstoða þig við þetta.

-       Fylltu á rúðupissið hjá þér

Yfir veturinn nota flestir meira rúðupiss en vanalega, það er ekkert vandræðalegra en að vera rúðupisslaus með skítuga framrúðu þegar sumarsólinn tekur á móti þér.

-       Hugaðu að mottunum

Ef þú ert með teppamottur er um að gera að taka þær og skola þær vel og vandlega og hengja þær til þerris. Ef þær eru slitnar er kjörið tækifæri að endurnýja þær.

-       Athugaðu dekkjaþrýsting

Jafnaðu þrýstinginn í dekkjunum hjá þér, ekki gleyma varadekkinu. Á sama tíma skaltu athuga ástandið á dekkjunum og huga að því hvort tími sé kominn að endurnýja þau. Í þjónustubókinni er að finna helstu upplýsingar um dekkjaþrýsting en með því að vera með réttan þrýsting í dekkjunum þínum minnkar þú eyðslu og slit á bílnum.

-        Athugaðu olíuna

Athugaðu stöðuna á olíunni og bættu á ef þess þarf. Í þjónustuhandbókina má finna upplýsingar um hvort tími sé kominn til að skipta um olíu, á flestum bílum þarf annaðhvort að skipta um olíu á 10, 15, 20 eða 30 þúsund kílómetra fresti eða einu sinni á ári.

-       Farðu yfir neyðarbúnaðinum

Það verður lítið gagn af dúnúlpu og snjóskóflu um hásumar á Íslandi svo taktu það úr skottinu. Athugaðu síðan allan helsta neyðarbúnað má þar helst nefna tjakk, felgulykil, neyðarþríhyrning og sjúkrapúða.

-       Farðu yfir þjónustusöguna

Þarftu að fara með bílinn í skoðun eða reglubundinna ábyrgðarskoðun núna er tíminn til að huga að því, kíktu í þjónustuhandbók bílsins og sjáðu hvort það sé eitthvað sem þarf að gera miðað við núverandi kílómetrastöðu. Gott er að panta tíma með fyrirvara í staðinn að vera á síðasta snúning.