Norðurland fær Demantshring

Demantshringurinn, ný 250 kílómetra ferðamannaleið sem tengir saman fjölda áfangastaða á Norðurlandi, var opnaður með formlegum um helgina.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra opnuðu leiðina með því að klippa á borða sem strengdur var yfir nýjan Dettifossveg milli Dettifoss og Vesturdals við Jökulsárgljúfur.

Með þessari opnun er hægt að keyra milli Húsavíkur, Goðafoss, Mývatnssveitar, Dettifoss og Ásbyrgis á bundnu slitlagi en kallað hefur verið eftir þessari samgöngubót í áraraðir. Gamli vegurinn milli Dettifoss og Ásbyrgis var torfarinn og ófær stóran hluta ársins.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, var ánægð með daginn og sagði af því tilefni að Demantshringurinn gerir okkur kleift að heimsækja fjöldamargar náttúruperlur á einum degi og mun opna norðausturhornið enn betur fyrir innlendum og erlendum gestum.

,,Það var stórkostlegt að heimsækja Dettifoss en þessi samgöngubót mun verða til þess að fleiri munu heimsækja hann og aðra stórkostlega staði i þessum landshluta,“ sagði Katrín Jakobsdóttir.