Ný stjarna Liverpool á svakalegum Mercedes-AMG

Florian Wirtz kemur frá þýskalandi og er einn heitasti fótboltamaðurinn í dag. Hann átti fjögur góð tímabil með þýska liðinu Bayer Leverkusen, þar á meðal vann titil með þeim, en var á dögunum keyptur af Liverpool fyrir 150 milljónir evra.

Það er svakalega há upphæð og hægt væri að kaupa marga skemmtilega bíla fyrir þann pening.

Wirtz hefur góðan smekk á bílum, en hann á glæsilegan og skemmtilegan Mercedes-AMG GT 4 dyra coupé. Fótboltamaðurinn er klárlega ekki einungis snöggur á vellinum heldur einnig á veginum.

Það eru ekki alveg nákvæmar heimildir um hvaða tegund af GT þetta er, en líklegast er að þetta sé GT 63. 2025 árgerðin af Mercedes-AMG GT 63 er búin 4 lítra V8 vél með tvöfaldri túrbínu, sem skilar 630 hestöflum og er 3,3 sekúndur frá 0-100 km/klst, sem er ekki slæmt á hraðbrautinni.