Ný stöðubrotsgjöld með nýjum umferðarlögum

Bílastæðasjóður vill vekja athygli á því að ný umferðarlög tóku gildi um áramótin. Helsta breytingin í nýjum lögum hvað varðar eftirlit stöðuvarða og lögreglu er sú að við ákvæðum sem áður voru sektir við skal nú setja setja stöðubrotsgjald.

Dæmi um þetta er þegar lagt er við brunahana, fyrir innkeyrslum og öfugt við akstursstefnu eða þegar bifreið er stöðvuð eða henni lagt á akbraut sem skipt er í akreinar með óbrotinni mið- eða deililínu. Stöðubrotsgjaldið er 10.000 kr.

Stöðuverðir hafa hins vegar haft heimild frá árinu 1987 til að setja á stöðubrotsgjöld vegna bifreiða sem leggja til dæmis á gangstétt, of nálægt vegamótum, stæði sem ætluð eru fyrir fatlað fólk og innan við fimm metra frá gangbraut svo eitthvað sé nefnt.

Ný ákvæði um sérmerkt stæði

Einnig eru nokkur ný ákvæði í umferðarlögunum hvað varðar sérmerkt stæði eins og fyrir rafbíla en aðeins rafbílar mega leggja á merktu stæði ætluðu bifreið til rafhleðslu. Enn fremur mega til að mynda aðeins vörubifreiðar og hópbifreiðar leggja í stæði sem eru sérstaklega merkt slíkum bifreiðum.