Ný "Súkka" í Genf

Suzuki frumsýnir nýjan bíl í C-stærðarflokki (Golf-flokknum) á bílasýningunni í Genf sem haldin verður dagana 5. til 17. mars næstkomandi. Bíllinn er svonefndur blendingur þar sem saman fara stíleinkenni og notkunarmöguleikar fólksbíls, jepplings og fjölnotabíls.

Nýi bíllinn byggir á S-Cross hugmyndabílnum sem Suzuki frumsýndi á bílasýningunni í París í september í fyrra.

Suzuki hefur ekki látið mikið efni fara frá sér um nýja bílinn en sendi þó nýlega frá sér myndir sem sýna viss hönnunaratriði hans. Fyrirtækið segir að nýi bíllinn státi af miklu innanrými og einu mesta farangursrými í flokki blendinga. Þá búi bíllinn yfir yfirburða fjölhæfni í notkun.

Suzuki hefur lengi þótt standa framarlega þegar kemur að fjórhjóladrifstækni. Nýi bíllinn verður fjórhjóladrifinn sem tryggir honum trausta aksturseiginleika.

Á Genfarsýningunni mun Suzuki einnig sýna smábílana Alto og Splash sem og Swift og aldrifsbílana SX4, Jimny og Grand Vitara.

Hér má sjá myndskeið af nýja bílnum.