Ný verðkönnun FÍB á rúðuvökva

FÍB hefur gert verðkönnun á rúðuvökva og reiknað út lítraverð miðað við -9 gráðu frostþol.  Rúðuvökvinn sem fæst í Múrbúðinni reynist vera á hagstæðasta verðinu. Út frá frostþolsforsendunni er verðmunur milli dýrasta vökvans og þess ódýrasta 108 prósent. Sjá nánar hér.

Meginefnin í rúðuvökva eru vatn og spíri en blönduhlutföll þessara meginefna er nokkuð mismunandi frá einum framleiðanda til annars. Því er frostþolið að sama skapi mismunandi. Samkvæmt upplýsingum sem FÍB aflaði hjá efnafræðingi þarf að vita eðlisþyngd blöndunnar til að geta glöggvað sig á hlutfalli spíra og vatns í rúðuvökva og þar með frostþol vökvans. Eðlisþyngd vatns er 1. Það þýðir að einn lítri af vatni er eitt kíló að þyngd. Spíri (etanól og ísóprópanol) er léttari en vatnið og ef eðlisþyngd rúðuvökva er 0,98 er frostþol blöndunnar í kring um -3 gráður. En sé eðlisþyngd hennar 0,96  er frostþolið í kring um -17 gráður. Sé eðlisþyngdin 0,97 er frostþolið nokkurnveginn mitt í milli. Ýmis önnur efni, eins og sápa kunna að vera í rúðuvökva, en þau eru í það litlum mæli að þau breyta frostþolinu sáralítið til eða frá.

Það er út frá þessum forsendum sem við höfum reiknað verð rúðuvökvanna til að neytendur geti fengið skýran verðsamanburð út frá einni og sömu forsendunni.

Lægsta lítraverð rúðuvökva, sé ekki tekið tillit til frostþols, reyndist vera hjá Bónusi en frostþol hans einungis -9 gráður. Hæsta lítraverðið á sama hátt var á rúðuvökva frá Mjöll-Frigg; kr. 350,40 en sá vökvi þolir hins vegar-18 stiga frost og er þannig talsvert önnur vara. En þegar frostþol hans er umreiknað til lítraverðs miðað við -9 gráðu frostþol þá kostar lítrinn kr. 175,20.

Rúðuvökvinn frá Múrbúðinni sem reyndist á hagstæðasta verðinu miðað við frostþol, fæst í fjögurra lítra brúsum sem kosta kr. 690. Frostþol vökvans í brúsunum er -18 gráður. Það jafngildir því að miðað við -9 gráðu frostþol er lítraverðið kr. 86,30.

Segja má að -9 gráðu frostþol sé tæpast nægilegt. En það dugar nokkurnvegignn á höfuðborgarsvæðinu þar sem fremur sjaldgæft er að frost verði mikið meira en það. Öðru máli gegnir hins vegar víða inn til landsins þar sem frost verða talsvert harðari oft á tíðum.

-9 gráðu frostþol myndi hvergi nærri duga í t.d. Moskvu þar sem frost fara oft niður í -40 stig. Íslendingur sem þar bjó alllengi segir við FÍB að þar hafi rúðuvökvinn verið fokdýr. Flestir hafi því tekið það ráð að kaupa bara vodka í næstu matvöruverslun og hella því á rúðuvökvakerfi bíla sinna. Vodkinn var nefnilega verulega ódýrari og sömuleiðis frostþolnari en rúðuvökvarnir á bensínstöðvunum og hreinsaði framrúðuna ekki síður vel, ekki síst ef smá uppþvottalegi var blandað út í hann.