Nýjar neytendamerkingar hjólbarða

Nýjar merkingar fyrir hjólbarða sem hafa þann tilgang að hjálpa neytendum að velja réttu sumar- eða vetrarhjólbarðana eru orðnar að lögskyldu. Allir hjólbarðar skulu frá og með 1. nóvember vera með nýju merkingunum og gilda þessi Evrópulög einnig á Íslandi.

Merkingunum er ætlað  að sýna skýrt og auðveldlega þau atriði sem mestu skipta þegar valin eru ný dekk undir bílinn, sem eru eldsneytiseyðsla (núningsmótstaða) hjólbarðanna, veggrip í bleytu og veggnýr mældur í decibelum. Nýju reglurnar tóku gildi fyrr á árinu en gefinn hefur verið aðlögunartími sem rennur út þann 31. október nk. Frá og með 1. nóvember eiga því allir nýir hjólbarðar að vera komnir með merkingar, en þær verða á áberandi límmiða sem festur er á hjólbarðana eða til staðar fyrir kaupandann að sjá. Upplýsingar varðandi merkingarnar verða að vera á reikningnum eða fylgja við kaup á dekkjum.  FÍB telur þessar nýju merkingareglur vera af hinu góða og stuðla að betra öryggi neytenda í dekkjakaupum og vera góða viðbót við þær upplýsingar, sem stóru hjólbarðakannanirnar sem FÍB blaðið birtir hvert haust og vor, veita.

Það hefur vissulega verið þrautin þyngri eða jafnvel ómögulegt hingað til að lesa út úr merkingum á hjólbörðunum ýmsa eiginleika þeirra sem máli skipta fyrir hvern og einn kaupanda. Upplýsingar um marga eiginleika dekkja hefur hingað til nánast eingöngu verið að fá út úr dekkjaprófunum óháðra aðila. Nýju merkingareglurnar eru þannig góð viðbót við kannanirnar, því að eins og þær hafa sýnt, er munur á dekkjum.

Nýju merkingarnar eru auðlæsilegar enda byggjast þær á sömu hugsun og alþekktar merkingar á t.d. þvottavélum og fleiri heimilistækjum. Þær sýna einskonar þrepaskiptingu og hvað varðar eiginleika í bleytu þá táknar hvert þrep niðurávið aukna hemlunarvegalengd upp á sex metra viðað við nauðhemlun á 80 km hraða. Munurinn á því hvort dekk sé að þessu leyti í A eða F þrepi þýðir þannig yfir 18 metra mun á hemlunarvegalengd.