Nýorkubílar standa enn fyrir meirihluta bílakaupa

Á fyrstu níu mánuðum ársins seldust alls 7268 nýir fólksbílar. Það er um 26,1% færri bílar en á sama tíbili í fyrra. Í septembermánuði einum seldust 1014 nýir fólksbílar sem gerir um 41,8% fleiri bílar en í sama mánuði í fyrra eftir því sem fram kemur í tölum frá Bílgreinasambandinu.

Fram kemur að sala til einstaklinga hefur aukist á árinu um 3% á fyrstu níu mánuðum ársins miðað við sama tímabil í fyrra. Sala til almennra fyrirtækja ( fyrirtæki önnur en bílaleigur) hefur einungis dregist saman um 8,1% það sem af er ári.

Nýorkubílar standa enn fyrir meirihluta bílakaupa hjá einstaklingum á árinu, eða  66,7% af öllum seldum bílum til einstaklinga það sem af er árinu. Þetta hlutfall var 42,2% yfir sama tímabil í fyrra.

Sama gildir um almenn fyrirtæki (önnur en bílaleigur) en 58,9% allra nýrra bíla sem þau hafa keypt á árinu eru nýorkibílar samanborið við 38,9% fyrstu níu mánði ársins í fyrra.