Nýr CLS vekur athygli á sýningu í LA

Nýr Mercedes-Benz CLS var frumsýndur á bílasýningunni sem nú stendur yfir í Los Angelesþ Bílsins hefur verið beðið með mikilli eftirvæntingu eins og við mátti búast vakið mikla athygli.

Þetta er þriðja kynslóð CLS og hefur fallega hönnun og demantagrillið að framan gefur flotta sýn á nýjan CLS. Ljósin að framan eru með nýrri hönnun og skarpari línum en áður og þá er einnig ný hönnun á afturljósum bílsins. CLS er sem fyrr með coupe lagi þannig að þaklínan kemur hallandi niður sem gefur þessum stóra fjögurra dyra lúxusbíl sportlegt yfirbragð.

Innanrýmið hefur breyst talsvert og styðst allnokkuð við innréttingu hins nýja E-Class. Það er ekki leiðum að líkjast því E-Class er talinn með eina fallegustu innréttingu sem í boði er fyrir lúxus fólksbíl í dag. CLS býður upp á 64 mismunandi litatóna í innilýsingu. 12,3 tommu skjár sér um að veita ökumanni og farþegum alla tækni varðandi akstursupplýsingar og afþreyingu.
 
Nýr CLS kemur með nýjum vélarbúnaði bæði í dísil- og bensínútfærslum. Dísilvélarnar skila frá 286 til 340 hestöflum en aflmesta útfærslan er C 450 með 3 lítra besnínvél. Sá bíll er aðeins 4,8 sekúndur úr kyrrstöðu í hundraðið. CLS í AMG útfærslu verður þó enn aflmeiri þegar hann kemur á akrað í byrjun nýs árs en hann verður með 450 hestafla bensínvél. CLS býður upp á enn meira pláss en áður bæði fyrir farþega og farangur. Farangursrýmið í CLS er stærra en áður og tekur nú 520 lítra.
 
Nýr CLS er búinn öllum nýjustu aksturs- og öryggiskerfum frá Mercedes-Benz. Bíllinn er í boði með 4MATIC aldrifskerfinu frá þýska lúxusbílaframleiðandanum sem er eitt það tæknivæddasta sem völ er á. Myndavélar og radarvarar í kringum bílinn sjá til að gefa ökumanni mjög góða yfirsýn yfir nánasta umhverfi og umferð.