Nýr EQA rafbíll frumsýndur á heimsvísu

Nýr Mercedes-Benz EQA rafbíll sem beðið hefur verið eftir var heimsfrumsýndurfyrir helginaen bíllinn var frumsýndur á öllum mörkuðum í gegnum stafræna miðla. Mercedes-Benz sýndi hugmyndaútgáfu bílsins í Frankfurt árið 2017 og mikil eftirvænting hefur ríkt eftir komu bílsins enda er hann í stærðarflokki sem nýtur mikilla vinsælda um allan heim.


Nýr EQA er hreinn rafbíll með allt að 426 km drægni samkævmt WLTP staðli og engan útblástur. Bíllinn er búinn öflugum 66,5 kW rafhlöðum sem skila honum 190 hestöflum og hröðunin úr kyrrstöðu í hundraðið er 8,05 sekúndur ef miðað er við EQA 250. Hámarkstog EQA 250 er 375 Nm. Von er á allt að 285 hestafla útfærslu sem er aðeins 5,5 sekúndur úr kyrrstöðu í hundraðið. EQA kemur fyrst um sinn einungis framdrifinn en verður í boði fjórhjóladrifinn nú strax í sumar.

EQA er byggður á hinum nýja MFA2 undirvagni frá Mercedes-Benz sem verður einnig notaður í EQB og fleiri rafbílum sem EQ deild Mercedes-Benz hannar. Hönnun EQA er flott og framsækin og í anda EQ stefnu þýska lúxusbílaframleiðandans. EQA verður búinn ýmsum búnaði og hönnun sem er í EQC, fyrsta rafsportjeppa Mercedes-Benz. Má þar nefna LED línu á fram- og afturljósum bílsins og sportlegt grillið að framan. Í innanrýminu er stafrænt stjórnrýmið spennandi og nútímalegt.