Nýr Nissan Leaf á leiðinni
Nýr Nissan Leaf var frumsýndur í síðustu viku. Þetta er þriðja kynslóð þessa vinsæla rafbíls sem verður allt öðruvísi en fyrri kynslóðir. Nýja kynslóðin er raunar hönnuð og smíðuð frá grunni.
Tvær rafhlöðuútgáfur verða í boði, 52 kWh og 75 kWh, sem gefa bílnum drægni upp á um 400 og 604 kílómetra samkvæmt WLTP stöðlum. Nissan Leaf með 52 kWh rafmótor verður 147 hestöfl á meðan stærri gerðin með 75 kWh rafmótor verður 212 hestöfl.
Nissan leggur sérstaka áherslu á góða skilvirkni bílsins við lengri og hraðari akstur og fullyrðir japanski bílaframleiðandinn að Leaf geti farið meira en 320 kílómetra á 130 km/klst stöðugum hraða. Nýi bíllinn kemur á markað næsta vor í Bandaríkjunum og Evrópu. Hann verður bæði framleiddur í verksmiðju Nissan í Sunderland í Bretlandi og einnig í heimalandinu Japan. Verðið hefur ekki verið gefið upp.
Nissan Leaf kom fyrst á markað árið 2010, en hann var fyrsti fjöldaframleiddi rafbíllinn og sá mest seldi frá árunum 2011-2019. Leaf hefur verið afar vinsæll og var mest seldi rafbíll heims frá 2011 til 2019. Samtals hafa selst tæplega 700 þúsund eintök af bílnum frá upphafi.