Nýr og stærri Suzuki SX4

Hann var fyrst sýndur sem hugmyndabíllinn S-Cross á bílasýningunni í Frakklandi í fyrra. Nú er hann klár til framleiðslu og var frumsýndur á bílasýningunni í Genf.

Bíllinn sem um ræðir er nýr Suzuki SX4 frá grunni.

Suzuki ætlar sér stóra hluti í hinum vinsæla C-stærðarflokki. Þess vegna er nýr SX4 hannaður með það fyrir augum að vera í forystu innan stærðarflokksins bæði hvað varðar innanrými og lítinn útblástur.

Bíllinn kemur í sölu í Evrópu næsta haust. Hann verður boðinn með tveimur gerðum véla, bensínvél og dísilvél með sama 1,6 lítra slagrýminu.

Bensínvélin verður boðin með fimm gíra beinskiptingu en dísilbíllinn fær sex gíra beinskiptingu. Þá verður SX4 einnig fáanlegur með CVT sjálfskiptingu.

SX4 hefur, eins og nafnið gefur til kynna, drif á öllum hjólum. Aldrifskerfið kallast AllGrip. Það er með fjórum mismunandi stillingum sem ökumaður getur valið um, allt eftir vegaðstæðum hverju sinni og eigin óskum.

Nýr SX4 er talsvert stærri en bíllinn sem hann leysir af hólmi. Fyrri gerðin var 4.135 mm á lengd og 1.755 mm á breidd en nýi bíllinn er 4.300 mm á lengd og 1.765 mm á breidd. Þá fer hjólhafið úr 2.500 mm í 2.600 mm sem gerir það að verkum að farangursrýmið eykst úr 270 lítrum í heila 430 lítra. Þetta þýðir að farangursrými í nýjum SX4 er eitt hið mesta í bílum í C-stærðarflokki.

Hönnun á innanrými SX4 tekur mið af þægindum á lengri ferðum. Þá verður hann fáanlegur með glerþaki með tvöfaldri, opnanlegri sóllúgu.