Nýr rafbíll frá KIA

Kia sýndi fyrir helgina fyrstu myndirnar af nýjum rafbíl sem ber heitið EV6. Um er að ræða sportlegan jeppling sem er hreinn rafbíll og fyrsti bíllinn af nýrri kynslóð rafbíla Kia. EV6 verður frumsýndur í vor og er mikil eftirvænting eftir komu hans á markað.

Þetta er fyrsti bíll Kia sem byggður er á nýjum og háþróuðum E-GMP undirvagni (Electric-Global Modular Platform) sem er sérstaklega hannaður fyrir rafbíla. Þessi nýi undirvagn verður notaður í næstu kynslóðir rafbíla hjá Kia.

Hinn nýi EV6 er þróaður samkvæmt nýrri hönnunarheimspeki Kia sem einblínir á rafbíla framleiðandans. Hönnunin er djörf og framsækin í takt við þær spennandi nýjungar sem rafbílar kalla fram. Kia kynnti einnig í dag nýtt nafnakerfi á rafbíla sína. Þeir munu allir heita EV og síðan mun tölustafur fylgja á eftir.

Það er margt spennandi í gangi hjá Kia en bílaframleiðandinn kynnti nýverið nýtt vörumerki sem er einn liðurinn í umbreytingu fyrirtækisins í þá átt að gera það enn meira spennandi og framsæknara.