Nýr Skoda Superb

http://www.fib.is/myndir/NyrSuperb.jpg
Ný gerð Skoda Superb.

Á bílasýningunni í Genf í næsta mánuði verður frumsýnd ný kynslóð stærsta Skódans; Skoda Superb. Undirvagn þessa nýja bíls mun vera nokkurnveginn sami og í VW Passat meðan undirvagn fyrri gerðarinnar var eiginlega VW Bora/Jetta sem búið var að lengja og breikka – sérstaklega þó að lengja. Myndir af nýja Superb bílnum hafa nú birst í tékknesku tímariti. Á þeim sést að Superb er að fá fleiri eigin sérkenni en eldri gerðin sem var svo sérkennalaus að illmögulegt er að sjá álengdar hvort um er að ræða Superb eða Octavia.

Auto Motor & Sport telur að sá Skoda Superb sem sýndur verður í Genf verði frumgerð sem sýnd verði til að kanna viðbrögð fólks. Bíllinn sjálfur sé enn á prófunar- og þróunarstigi og hin endanlega framleiðslugerð verði svo sýnd á stóru bílasýningunni í Frankfurt á hausti komanda.

Tímaritið hefur eftir yfirhönnuði Skoda, Peter Olah, að menn hafi mjög frjálsar hendur með hvernig tækni frá móðurfyrirtækinu Volkswagen er nýtt í Skodabílum. Menn þurfi t.d. alls ekki að nota botnplötur eða undirvagnana frá VW óbreytta heldur hafa svigrúm til að móta þá eftir eigin hentugleikum og hugarflugi. Þetta skapi möguleika á að skapa sérstaka og einstæða bíla. Tímaritið hefur hins vegar ekki getað fengið neitt upp úr hönnuðinum um hvort Passat- undirvagninn sé algerlega eins og í Passat eða hvort hann hafi fengið önnur hlutföll milli lengdar og breiddar o.s.frv.

Skoda Superb hefur vissulega verið á sinn hátt keppinautur VW Passat, ekki síst í bæði Þýskalandi og Svíþjóð þar sem Skódinn þykir hafa reynst mjög vel og verið öruggari í rekstri og miklu síður gjarn á að bila en einmitt Passatinn þótt talsvert ódýrari sé. Aksturseiginleikar hans hafa þótt ágætir og bíllinn í alla staði rúmgóður og þægilegur. Með nýja Súperbinn má því allt eins leiða líkur að því að Tékkarnir hafi heldur bætt bílinn að þessu leyti til að gera hann enn áhugaverðari og því harðni þessi „innanhúss“-samkeppni Superb og Passat enn meir en áður.
http://www.fib.is/myndir/NyaSuperbklipp_.jpg