Nýr Suzuki Grand Vitara

Suzuki Grand Vitara hefur lengi verið einn af eftirsóttari jeppunum í sínum stærðarflokki á Íslandi. Um helgina verður hann frumsýndur í nýrri gerð hjá Suzuki bílum í Skeifunni. Auk þess verður litli jeppinn Jimny sýndur með breyttu útliti um helgina.

Suzuki Grand Vitara hefur þá sérstöðu að vera með sítengdu aldrifi ásamt læsingu á millikassa og lágu drifi. Hér er því um að ræða hreinræktaðan jeppa sem hentar íslenskum aðstæðum vel. Undir yfirbyggingunni er sterkbyggð grind, aflmikil vél og fullkomið fjórhjóladrif með háu og lágu sídrifi með læsingu á milli fram og afturhjóla.

Nýja uppfærslan státar af breyttum framenda. Grand Vitara er boðinn með 1,9 lítra, 130 hestafla dísilvél og beinskiptingu og 2,4 lítra bensínvél, 164 hestafla, beinskiptur og sjálfskiptur.

Heldur hefur bæst í staðalbúnað bílsins frá fyrri gerð og meðal búnaðar sem honum fylgir má nefna lykillausa ræsingu og hurðaopnun, loftkælingu, Garmin leiðsögukerfi með snertiskjá og íslensku korti, Xenon framljós, reyklituð gler að aftan og margt fleira.

Grand Vitara er fyrsti bíllinn sem er boðinn með Garmin leiðsögukerfi sem staðalbúnað hér á landi.

Grand Vitara verður frumsýndur hjá Suzuki bílum í Skeifunni 17 á laugardag og sunnudag milli kl. 12-16.