Nýskráningar fólksbíla 4193 fyrstu sex mánuði ársins

Í júní seldust 824 nýir fólksbílar, eða 39,4% færri bílar en í júní í fyrra. Á fyrstu 6 mánuðum ársins hafa selst 4193 nýir fólksbílar, eða 42,5% færri en á sama tímabili í fyrra. Þetta kemur fram í upplýsingum frá Bílagreinasambandinu þegar sölutölur fyrir fyrstu sex mánuði ársins liggja fyrir.

Þar kemur ennfremur fram að samdrátturinn helgast fyrst og fremst af færri nýjum bílaleigubílum, en þeir hafa dregist saman um 76,1% á milli ára á meðan bílar til einstaklinga og almennra fyrirtækja hafa aðeins dregist saman um 8,2%.

Nýorkubílar standa fyrir 57,0% af öllum seldum nýjum bílum það sem af er ári.  Notaði markaðurinn hefur haldið sér ágætlega og maí var til að mynda á pari við sama mánuð í fyrra.

Eins og kom fram að framan dróst sala nýrra fólksbíla í júní saman um 39,4% miðað við júní í fyrra, en alls voru skráðir 824 nýir fólksbílar nú en voru 1359 í fyrra. Þar með hefur sala nýrra bíla dregist saman um 42,5% á fyrri helmingi ársins borið saman við sama tímabil í fyrra, þar sem 4193 nýir fólksbílar hafa selst í ár en voru 7294 í fyrra.

Ljóst er að mikill samdráttur er á milli ára sem rekja má til heimsfaraldurs COVID-19. Fyrst og fremst eru áhrifin á ferðaþjónustuna en mun færri bílaleigubílar hafa verið nýskráðir á fyrri helmingi ársins í ár miðað við sama tímabil síðasta árs. Hafa 873 nýir bílaleigubílar verið skráðir núna á fyrstu 6 mánuðum þessa árs en voru 3659 á sama tíma í fyrra, sem gerir 76,1% samdrátt á milli ára.

Aðra sögu er hinsvegar að segja af einstaklingum og almennum fyrirtækjum því til þeirra hafa selst 3285 nýir fólksbílar það sem af er ári og er það samdráttur upp á 8,2% miðað við sama tíma í fyrra. Hlutfall orkugjafa er að breytast töluvert milli ára og hefur selst mest af rafmagnsbílum eða 1069 það sem af er ári. Hlutfall nýorkubíla (tengiltvinn, rafmagns, hybrid og metan) er 57% af allri sölu nýrra fólksbíla á árinu samanborið við tæplega 23% í fyrra.

Einnig hefur markaðurinn með notaða bíla haldið sér ágætlega á árinu en eftir að hafa gefið örlítið eftir í mars og apríl þá var maí mjög góður og á pari við maí í fyrra hvað varðar fjölda eigenda- og umráðamannaskipta.

 Mest selda tegundin það sem af er ári er Toyota með 550 bíla (13,1% hlutdeild), en þar á eftir kemur Tesla með 465 bíla (11,1%) og svo Kia með 329 bíla (7,8%).