Nýskráningar orðnar 8.879 – sem er 22,2% samdráttur

Þegar tæplega þrjár vikur eru eftir af þessu ári eru nýskráningar fólksbifreiða orðnar 8.879 talsins. Það er um 22,2% samdráttur miðað við sama tímabil á síðasta ári. Þegar rýnt er nánar í tölurnar kemur í ljós að flestar nýskráningar á þessu ári voru í júlí, alls 1.480, en fæstar í apríl, alls 372.

Í tölum frá Bílgreinasambandinu kemur fram að Toyota trónir í efsta sætinu hvað nýskráningar varðar, alls 1.357. Kia er með 891 nýkráningar og Tesla kemur í þriðja sætinu með 860. Í næstu sætum þar á eftir koma Hyundai með 655, Volkswagen 577, Mitsubishi, 486, Suzuki 449, Nissan 390 og Volvo 379.

Almenn notkun er um 76% heildarskráninga og til bílaleiga 22,6%. Hlutdeild rafmagnsbíla er 24,%, bensíbíla 23,7%, dísil 19,7%, tengiltvinn 19% og hybrid 12,8%.