Nýtt bílavörumerki kynnt

Bílabúð Benna hélt sýningu um helgina þar sem nýtt bílavörumerki, KGM var kynnt. KGM tekur við af hinu gamalgróna SsangYong sem Íslendingar þekkja vel. Sýningin fór  fram á í sýningarsal KGM á Krókhálsi 9.

Á seinasta ári keypti stórfyrirtækið KG Group í Kóreu ráðandi hlut í SsangYong með það í huga að sækja á evrópska bílamarkaðinn m.a. með framleiðslu á nýjum rafbílum. KG group stefnir m.a. á að frumsýna fjóra nýja rafbíla á næstu misserum en fyrsti rafbíllinn undir merkjum KGM verður frumsýndur hér á landi í haust. Hann er ber nafnið Torres EVX.

Nafnabreytingin mun ekki hafa nein áhrif áeigendur SsangYong bíla hér á landi hvað varðar ábyrgð og þjónustu sem helst óbreytt á eldri bílum. Nýrri bílar frá KGM munu þó hljóta enn betri ábyrgðarskilmála en til að mynda verður rafhlaða EVX rafbílsins með 10 ára og milljón kílómetra ábyrgð. SsangYong eigendur munu áfram geta sótt þjónustu hjá Bílabúð Benna.