Nýtt öryggiskerfi í Subaru fær viðurkenningu

Samband kanadískra bílablaðamanna, AJAC, hefur útnefnt nýjan öryggisbúnað í Subaru Forester sem bestu nýsköpun ársins á öryggissviði (Best Safety Innovation for 2019). Búnaðurinn nefnist „Subaru DriverFocus Distraction Mitigation System“ og er ætlaður til að auðvelda ökumanni að takast á við ýmsar truflanir sem fylgja akstri og einnig til að vekja athygli hans skynji búnaðurinn þreytumerki í fari ökumanns til að draga úr líkum á óhappi.

Kerfið er ný viðbót við öryggiskerfið EyeSight sem Subaru þróaði og hefur margsinnis verið verðlaunað fyrir að vera það besta á markaðnum í dag.

Nýi búnaðurinn notar andlitsgreiningu til að fylgjast með athygli ökumanns og bera kennsl á þreytumerki sem benda til þess að ökumaður ætti að taka sér stutta hvíld frá akstri. 

Bandaríski bílavefurinn Edmunds, sem leiðbeinir milljónum notenda í bílahugleiðingum með hagnýtum ráðum, útnefndi þrjár bílgerðir Subaru sem þær bestu í sínum flokki vegna þess hve vel þær halda verðgildi sínu fyrstu fimm árin.

Verðlaun Edmunds eru hönnuð til aðstoðar fyrir einstaklinga í bílahugleiðingum þannig að þeir geti tekið sem upplýsta ákvörðun áður en gengið er frá kaupum á notuðum bíl.