Öflugur og glæsilegur BMW M5
BL kynnti á dögunum svakalegan og glæsilegan tengiltvinn sportbíl, sem kallast BMW M5 G90. M5 hefur verið flaggskip M deildar þýska lúxusbílaframleiðandans síðan á níunda áratugnum.
Nýi M5 G90 er gríðarlega öflugur, með 4,4 lítra V8 vél með tvöfaldri forþjöppu ásamt rafmótor sem skilar 727 hestöflum og 1.000 Nm af togi. Krafturinn er svo mikill að bíllinn er 3,5 sekúndur frá 0-100 km/klst. Mesta áskorunin er sennilega að keyra þennan bíl löglega hér á landi.
Sportbíllinn er með framúrskarandi tækni eins og sjónlínuskjá, snertiskjár og sérsniðin ljós að innan til að búa til skemmtilega stemningu, en einnig búinn góðum aksturseiginleikum.
Aukin þægindi koma líka með bílnum en M framsætin passa vel upp á ökumanninn í akstri. Bíllinn er með xDrive fjórhjóladrifinu frá BMW sem tryggir að aflið dreifist jafnt til allra hjólanna.