Ökumenn hreinsi vel af öllum rúðum

Lögreglan á Norðurlandi eystra minnir ökumenn á að hreinsa snjó vel af öllum rúðum bifreiða sinna áður en ekið er af stað.

 Samkvæmt nýju umferðarlögunum er 20.000 kr sekt við því að aka með hélaðar rúður eða ef útsýn úr bifreiðinni er skert með öðrum hætti.

Myndin með fréttinni sýnir dæmi um það hvernig á ekki að hafa bifreiðina þegar ekið er af stað. Ástæða er til að minna á þetta og hvetja bílstjóra til að gera þetta vel og samviskusamlega. Þetta er mikið öryggismál.