Ökuréttindi atvinnubílstjóra án endurmenntunar ekki afturkölluð

Samkvæmt tilmælum frá dómsmálaráðuneytinu munu lögregluembætti ekki afturkalla gild skírteini gefin út fyrir 10. september 2018 með ökuréttindum fyrir bílstjóra til aksturs ökutækja í flokkum C, C1, D1 og D í atvinnuskyni, sem ekki hafa lokið lögbundinni endurmenntun. Þetta kemur fram á vef samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins.

Meginástæða er sú að ekki er að finna viðhlítandi refsiheimild í umferðarlögum sem leggur bann við akstri bílstjóra með gild ökuskírteini í atvinnuskyni án endurmenntunar. Krafa um endurmenntun lúti aðeins að skilyrðum fyrir útgáfu ökuréttinda.

Öllum sem stjórna ökutækjum í þessum flokkum í atvinnuskyni er áfram skylt að sækja sér endurmenntun. Framvegis verða ökuskírteini með atvinnuréttindum eingöngu gefin út til einstaklinga sem lokið hafa lögbundinni endurmenntun. Skírteini fyrir umrædda flokka til aksturs í atvinnuskyni eru gefin út til fimm ára.

Ákvæði um endurmenntun sett inn árið 2015
Árið 2015 voru gerðar breytingar á umferðarlögum nr. 50/1987 þar sem meðal annars var bætt inn ákvæði sem kveður á um skyldu ökumanna sem stjórna ökutækjum í C1-, C-, D1- og D-flokki, til farþega- og vöruflutninga í atvinnuskyni, til að gangast undir endurmenntun á fimm ára fresti samkvæmt reglum sem ráðherra setur í reglugerð. Ákvæðið, sem er að finna í 4. mgr. 50. gr. umferðarlaga, á rætur sínar að rekja til tilskipunar 2003/59/EB.

Í breytingu á lögunum var að finna bráðabirgðaákvæði sem kvað m.a. á um að allir þeir sem hafa réttindi til að stjórna ökutækjum í framangreindum flokkum skuli hafa undirgengist endurmenntun fyrir 10. september 2018.

Þrátt fyrir þetta voru gefin út ökuskírteini fyrir 10. september 2018 með hefðbundinn fimm ára gildistíma sem gefa til kynna að ökumaður hafi réttindi til aksturs umræddra ökutækja í atvinnuskyni. Því er hluti atvinnubílstjóra með gild ökuskírteini til aksturs í atvinnuskyni, án þess að uppfylla kröfur laga um að hafa lokið tilskilinni endurmenntun.

Þar sem ekki eru nægar heimildir til þess að afturkalla gild ökuskírteini af framangreindum ástæðum og með vísan í að viðhlítandi refsiheimild var ekki að finna í umferðarlögum var ákveðið að senda tilmæli til lögregluembætta að um afturkalla ekki ökuréttindi vegna þessara atriða. Þeir sem hafa fengið útgefin gild skírteini með atvinnuréttindum eiga því ekki á hættu á að vera sektaðir að fyrrgreindum ástæðum eða að ökuréttindi þeirra verði afturkölluð, meðan skírteinin eru í gildi.

Tilmæli dómsmálaráðuneytis til Ríkislögreglustjóra dags. 22.1. 2019