Olíufélögin skuldi neytendum umtalsverða lækkun

Runólfur Ólafsson,framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda, FÍB, segir að gríðarlegur munur sé orðinn á hæsta og lægsta verði á bensíni og olíu. Ódýrasti dropinn hjá N1 er yfir 15 krónum dýrari en hjá Costco. Ódýrasti dropinn hjá Orkunni er tæplega 13 krónum dýrari en hjá Costco. Um tíma var verðmunurinn til að mynda hjá Costco og öðrum á markaðinum hér mun minni, þannig að það er farið að draga þar í sundur. Þetta kemur fram í viðtali við Runólf Ólafsson í Morgunblaðinu í dag.

,,Svo hefur líka myndast gat miðað við það sem við sjáum í nágrannalöndum okkar. Markaðurinn hér heima er töluvert seinni til að lækka. Það hefur verið lækkun að undanförnu en það sem af er ári höfum við t.d. ekki séð aðra eins álagningu á hvern lítra af bensíninu,“segir hann. Olíufélögin skuldi neytendumum talsverða lækkun. Sömu sögu er að segja af verðþróun á díselolíunni.

Í umfjöllun Morgunblaðsins kemur fram að verð á bensíni og díselolíu til neytenda hefur farið lækkandi að undanförnu en bilið á milli hæsta og lægsta verðs hefur sjaldan verið meira en um þessar mundir. Verðið var í gær lægst hjá Costco í Kauptúni í Garðabæ, þar sem bensínlítrinn kostaði 277,7kr.,en til að kaupa þar bensín þarf fólk að kaupa sér aðgangskort.

Á höfuðborgarsvæðinu var verðið á einum bensínlítra hæst 321,7 kr. hjá N1 og algengasta verð á sölustöðum olíufélaganna þar sem lítrinn er dýrastur var á bilinu 317,10 kr. til 321,7 kr. Á stöðvum félaganna sem bjóða upp á umtalsvert ódýrara eldsneyti, var lítrinn síðdegis ígær á 290,50 kr. hjá Orkunni og Atlantsolíu, 292,60 kr. hjá ÓB og 292,90 hjá N1 samkvæmt vefsíðunni GSMbensín.

Runólfur segir að Costco veiti markaðinum eitthvert aðhald en verðmunurinn á milli Costco og ódýrari stöðvakeppinautanna á markaði hafi verið minni í kringum seinustu áramót eða frá frá þremur til fimmkrónum á hvern lítra.

„Við segjum sem fyrr að félögin skuldi neytendum umtalsverða lækkun umfram það sem við erum að horfa upp á núna. Þetta er auðvitað háskattavara en þetta skrifast fyrst og fremst á aukna álagningu,“ segir hann spurður hver hann telji að verð þróunin á verði á næstunni.