Orkuskiptin munu ekki ganga eins greitt fyrir sig og boðað hefur verið

Um síðustu áramót var sett á fót nefnd á vegum félagsmálaráðuneytisins sem átti að endurskoða fjölbýlishúsalögin meðal annars með tilliti til rafbíla og hleðslu þeirra. Nefndin átti að skila af sér 1. mars en málinu hafi verið slegið á frest. Málið sé tímafrekt og tæknilega flókið en engu að síður þurfi að leysa úr því. Þetta kom fram í máli Sigurðar H. Guðjónssonar, formanns og framkvæmdastjóra Húseigendafélagsins í Morgunútvarpi Rásar 2 í morgun.

Sigurður segir að orkuskiptin munu ekki ganga eins greitt fyrir sig og boðað hefur verið nema farið verði af einurð og festu í innviðauppbyggingu. Hann segir stjórnvöld ekki hafa staðið sig í að styrkja innviðina. Það eigi við um lög um fjöleignahús og fleira. Menn verði að geta lagt í stæði og stungið rafbílum í samband. 

Hann sagði ennfremur að flestir rafbílaeigendur búi og muni búa í fjölbýlishúsum og þar hafi vandamálin hrannast upp og geti verið endalaus uppspretta fyrir deilur og samskiptavandamál 
 
Hann segir að varða þurfi leiðina með lagabreytingu. „Þetta er mjög aðallandi og brýnt og allskonar reddingar og bráðabirgðalausnir hefur maður séð. Leiðslur út um glugga og illdeilur og  tortryggni. Menn slást um með köplum og taka úr sambandi hver hjá öðrum vegna meints rafmagnsstuldar. Það er svona skeggöld og skálmöld í uppsiglingu. Mönnum þykir svakalega vænt um bílinn sinn, ekki síst rafbílinn og eru reiðubúnir að berjast fyrir hann,“ segir Sigurður. 

Hann segir að í byggingarreglugerð sé séð við þessu í nýbyggingum en í eldri húsum sé þetta vandamál. „Þetta vandamál sé líka oftar og oftar að skjóta upp kollinum í bílaviðskiptum og fasteignaviðskiptum. „Það er ekki gott að svona atriði stýri fasteignakaupum og bílakaupum,“ sagði Sigurður í Morgunútvarpi Rásar 2.