Örlítið hýrnar yfir bílainnflutningnum

Talsverð aukning hefur orðið í sölu nýrra fólksbíla fyrstu fjóra mánuði ársins miðað við sama tímabil í fyrra. Alls seldust 400 nýir fólksbílar frá áramótum fram til aprílloka á þessu ári, en á sama tímabili í fyrra seldust 349 nýir fólksbílar. Þetta er aukning upp á 14,6% milli ára. Mest var aukningin í nýliðnum marsmánuði en þá seldust alls 156 nýir fólksbílar á móti 69 í sama mánuði árið á undan, sem gerir viðsnúning upp á liðlega 126%. Í apríl var aukningin um 18%.

 Þessi aukning er merki um að tekið sé að lifna yfir bílamarkaðnum sem hefur verið afar daufur síðustu tvö ár. Á þeim tíma hefur meðalaldur bílaflota Íslendinga hækkað hratt og er hann nú með því hæsta sem gerist í nágrannalöndum okkar. Meðalaldur íslenska bílaflotans er um 10,2 ár á meðan meðalaldur bílaflotans í Evrópusambandinu er 8,5 ár. Á síðasta ári seldust um það bil 2000 fólksbílar á meðan gert er ráð fyrir að um 10.000 til 15.000 nýir bílar þurfi að fara á götuna árlega til að eðlileg endurnýjun eigi sér stað í bílaflota landsmanna.

 „Það eru góðar fréttir að sala nýrra bíla sé að taka við sér á ný. Ekki bara fyrir okkur sem störfum í bílgreininni, heldur líka alla þjóðina. Fyrir það fyrsta er þetta vísbending um að efnahagslífið sé að taka við sér eftir mögur ár í kjölfar bankahrunsins. Um leið skiptir eðlileg endurnýjun í bílaflota landsmanna miklu máli, vegna þess að því eldri sem bílaflotinn er, þeim mun meir fara landsmenn á mis við tækninýjungar nýrra bíla sem auka öryggi, minnka eldsneytiseyðslu og draga úr mengun,“ segir Özur Lárusson, framkvæmdastjóri Bílgreinasambandsins.

 Flest bílaumboð landsins standa fyrir opnu húsi laugardaginn 8. maí en það er þriðji laugardagurinn á þessu vori sem umboðin opna dyr sínar undir merkjum Bílavors 2010.