Rafbílar hvergi vinsælli en í Noregi

 Sala á rafbílum gengur hvergi betur en í Noregi og slagar fjöldi þeirra nú hátt í 150 þúsund talsins. Fyrsti Nissan Leaf kom á götuna í Noregi 2011 og hefur síðan notið mikilla vinsælda. Undir lok síðasta árs náði Nissan þar merkum áfanga en nú hafa fimmtíu þúsund Nissan Leaf verið seldir þar í landi, þar af yfir 15 þúsund  á síðasta ári. Langflestir Nissan Leaf bílar seldust í mars það ár, hátt á þriðja þúsund.

 Langir biðlistar eftir bílum

  Sala á rafbílum er best á Oslóarsvæðinu en bílar fara í vaxandi mæli út á landsbyggðina en áður. Ekkert lát er á sölu rafbíla í Noregi og bendir margt til þess að salan verði enn meiri á þessu ári. Biðlistar eru eftir rafbílum og eru dæmi um að kaupendur þurfi að bíla í nokkra mánuði eftir nýjum bíl.

  Norðmenn eru í algjöru forystuhlutverki þegar kemur að rafbílum í Evrópu og víðar í heiminum og er Nissan Leaf vinsælastur. Þess má geta að skráðir raf- og tengiltvinnbílar á Íslandi eru á níunda þúsund talsins. Fyrstu hlöður Orku náttúrunnar (ON) voru teknar í notkun í apríl 2014 en þá voru aðeins 94 rafbílar og 3 tengiltvinnbílar skráðir á Íslandi.