Rafgeymar - verðkönnun FÍB 2017

Nú styttist óðum í að vetur konungur gangi í garð og margur bíleigandinn hefur eflaust þegar komið að bílnum sínum straumlausum eftir frostkalda nótt eða á eftir að gera það. Haustið er nefnilega sá árstími sem best leiðir í ljós veikleika rafgeymisins í bílnum og hvort tími sé kominn til að endurnýja hann. En hvað kostar nýr rafgeymir í algengustu fólksbílana?

FÍB kannaði verð á rafgeymum fimmtudaginn 19. október . Hringt var í söluaðila og spurt um verð á 60 Ah rafgeymi sem er í venjulegan meðalstóran fimm manna fjölskyldubíl af Ford Focus gerð sem segja má að sé dæmigerður fjölskyldubíll. Ekki var spurt um þjónustu (rafgeymaskipti, mæling o.s.frv) viðkomandi söluaðila einungis verð á fyrrgreindri vöru. 

Algengasta afkastageta geyma í slíkum bílum er 60 Amperstundir. Langflestir geymarnir í könnuninni eru einmitt 60 Amperstundir en átta eru aðeins afkastameiri eða allt uppi í 65 Amperstundir.

Verðbilið sem geymarnir í þessari verðkönnun FÍB spannar er frá kr. 12.119. upp í 22.901 kr. Sá ódýrasti er Bosch rafgeymirinn hjá Costco á 12.119 kr. Sá er 60 Amperstundir.  Í könnunni er ekki tekið tillit til hvaða þjónusta er í boði á hverjum stað fyrir sig.

Talsverðar breytingar, þá aðallega til lækkunar, hafa orðið frá síðustu rafgeymaverðkönnun FÍB sem gerð var 14. október 2014. Þá kostaði ódýrasti rafgeymirinn 14.995 kr. en sá dýrasti kostaði 26.560 kr. Frá þeim tíma hefur vegið meðaltal af gengi helstu gjaldmiðla gagnvart krónu  lækkað um 20%.  Þann 1. janúar 2015 lækkaði almennt þrep virðisaukaskatts úr 25,5% í 24% og á sama tíma voru vörugjöld á rafgeyma m.a. lögð af. Innkoma Costco síðasta vor hefur einnig haft áhrif á markaðinn. Costco hefur reyndar hækkað verðið á Bosch 60 Ah rafgeyminum um ríflega 21% frá því í vor en þá kostaði hann 9.999 kr.  Hjá Vöku kostar Bosch 60 Ah rafgeymir 15.990 kr og hjá Kemi kostar sami geymir 17.188 kr. Athygli vekur að ódýrasti rafgeymirinn 2014 var Exide 62 Ah hjá Bauhaus sem kostaði 14.995 kr. en þessi sami geymir kostar í dag hjá Bauhaus 21.295 kr.