Rafmagnaður strætisvagn á leiðinni

Mercedes-Benz hyggst setja í gang í lok næsta árs framleiðslu á Mercedes-Benz Citaro strætisvagni sem mun ganga eingöngu fyrir rafmagni. Strætisvagninn hefur engan útblástur og sérlega hljóðlátur enda hreinn rafbíll.

Þróun á strætisvagninum er nú í fullum gangi hjá Daimler AG, móðurfélagi Mercedes-Benz og eru ýmsar prófanir nú þegar í gangi á bílnum. Framleiðsla á þessum nýja og rafdrifna strætisvagni verður bylting í samgöngutækni í borgum og bæjum að mati forsvarsmanna Daimler enda bæði hagkvæmur og sérlega umhverfisvænn.

Hinn nýi Mercedes-Benz Citaro verður með háþróaða rafmótora og lithium-ion batterí. Þessi 100% rafknúni strætisvagn frá Mercedes-Benz er væntanlegur á markað eftir níu mánuði.

Citaro strætisvagninn hefur verið framleiddur undanfarið sem Hybridbíll og með brunavélum og hefur verið vinsæll sem slíkur. 50 þúsund Citaro strætisvagnar eru nú komnir á markað með slíkum aflgjöfum en líklegt má telja að ný útfærsla stræstisvagnsins sem hreinn rafbíll verði mjög vinsæl þegar hún kemur á markað eftir rúmt ár.

Á ráðstefnunni Áfram Veginn sem Bílgreinasambandið og KPMG héldu í Hörpu 15. nóvember sl. kom fram að drægni þessa strætisvagns verður fyrst um sinn um 150 kílómetrar en mun fara upp í rúma 450 kílómetra innan 2-3 ára þegar vagninn verður fáanlegur með enn öflugri rafbúnaði.