Rafmagnsbílar 12% nýrra bíla fyrstu átta mánuði ársins

Sala á nýjum bílum í ágúst sl. dróst einungis saman um 3,7% en nýskráðir fólksbílar á þessu tímabili voru 1.465 bílar samanborið við 1.522 í sama mánuði árið 2017. Eru þetta 57 færri bílar frá því sem var selt í ágúst í fyrra og því hægt að segja að ágúst hafi verið mjög góður í sölu á nýjum bílum.

Á fyrstu átta mánuðum ársins hafa verið nýskráðir 15.033 fólksbílar sem gerir 11,8% samdrátt frá sama tímabili í fyrra. Af þeim 15.033 fólksbílum hefur 42% verið seldir með bensínvél, 39% með dísil og 12% rafmagn aðrar tegundir undir það.

Talið er að markaðurinn sé nú að ná jafnvægi hefur mikinn uppgang síðustu misseri en á síðasta ári var metsala í bílum. Á árinu 2017 seldust alls yfir 21 þúsund bílar. Búist er við örlitlum samdrætti út þetta ár og á því næsta. Mestur er samdrátturinn í sölu á bílum til bílaleiga.

Þess má geta að meðalaldur bifreiða á skrá árið 2017 var 12,03 ár en árið þar á undan var meðalaldurinn  12,5 ár. Íslenski bílaflotinn er gamall í alþjóðlegum samanburði.