Rafmagnsbíllinn Hyundai IONIQ kynntur á Íslandi

Rafmagnsbíllinn Hyundai IONIQ verður kynntur hjá Hyundai við Kauptún í Garðabæ nk. laugardag, 6. maí, milli kl 12 og 16. Þessi bíll, ásamt systurbílum sínum; IONIQ Hybrid og IONIQ Plug in Hybrid, hefur hlotið afar góðar viðtökur á mörkuðunum, en IONIQ er fyrsti bíllinn og sá eini enn sem komið er þar sem neytendur geta valið bílinn í þremur mismunandi útgáfum.

 Rafknúna útgáfa IONIQ sem BL kynnir á laugardaginn er handhafi titilsins „Bíll ársins 2017“ í Svíþjóð, Noregi og Frakklandi auk þess sem IONIQ hefur hlotið fjölda annarra verðlauna, m.a. „2016 Red Dot Design Award“, „GOOD DESIGN® Award 2015“ og 2016 auk þess sem Euro NCAP segir hann á síðasta ári öruggasta bílinn flokki minni fjölskyldubíla.

Thomas A. Schmid, rekstrarstjóri Hyundai Motor Europe segir að verðlaunin sem IONIQ hafi þegar hlotið séu til vitnis um getu og metnað Hyundai fyrir því að bjóða neytendum upp á umhverfismilda bíla.

„IONIQ er einn hagkvæmasti græni bíllinn á Evrópumarkaði um þessar mundir vegna mikillar ábyrgðar framleiðanda, langdrægni rafhlöðunnar sem spannar um 280 km, mikils búnaðar og mjög samkeppnishæfs verðs. Þessa kosti getur Hyundai boðið án þess að gera málamiðlanir í hönnun, aksturseiginleikum eða tengi- og tæknimöguleikum bílsins.“