Renault ZOE nýr kostur í flóru rafbíla

BL kynnti um helgina nýjan kost í flóru rafbíla hjá umboðinu og lagði fjöldi fólks leið sína á kynninguna. Bíllinn vakti mikla athygli og margir lögðu inn pantanir.

Renault ZOE er fjögurra manna bíll með allt að 400 km drægni. ZOE var einn mest seldi rafbíllinn í Evrópu á síðasta ári og hann er hann langmest seldi rafbíllinn í sínum flokki í heimalandinu, Frakklandi.

Rafmagnsbíllinn ZOE er ekki alveg nýr af nálinni frá Renault en þetta var í fyrsta sinn sem hann er kynntur hér á landi enda ákvað BL að bíða með kynninguna þar til Renault markaðssetti bílinn með alveg nýrri og langdrægari rafhlöðu sem hentar betur íslenskum aðstæðum.

 Uppgefin drægni framleiðanda er um 400 km samkvæmt stöðluðum mæliaðferðum NEDC (New Europeean Driving Cycle). Ætla má að við íslenskar aðstæður sé meðaldrægni á hverri hleðslu nær 300 km sem er með því besta sem gerist í þessum stærðarflokki.

Hægt er að hlaða ZOE á öllum hraðhleðslustöðvum ON sem verið er að setja upp víða um land, en auk þess er hægt að hlaða bílinn með 3ja fasa heimahleðslustöð á tveimur og hálfri klukkustund.

Í tilefni kynningar BL á ZOE býður BL fría heimahleðslustöð að andvirði 110 þúsund króna með öllum seldum ZOE til aprílloka og á tilboðið einnig við um þá sem staðfesta kaup á sama tímabili.

Renault ZOE í vel búinni Intens útgáfu sem er með öllum helsta öryggisbúnaði Renault sem aflaði bílnum 5 stjarna í öryggisprófunum EuroNCAP. Meðal staðalbúnaðar er sjálfvirkur hitastillir sem hitar bílinn upp að morgni áður en lagt er af stað út í umferðina, 16 álfelgur, LED dagljós og sjálfvirk hækkun og lækkun aðalljósa, regnskynjari á rúðuþurrkum, bakkmyndavél og R-link marmiðlunarbúnaður með 7“ snertiskjá og Bluetooth streymi fyrir síma og tónlist. Í þessari útfærslu kostar Renaut ZOE Intens 3.690.000 krónur. ZOE er einnig hægt að fá í BOSE-útgáfu með fullkomnu hljómkerfi og leðursætum.